Þjónusta
Skilareglur
Það er einfalt að skila vörum úr vefverslun Veiga
Hægt er að skila:
Vöruskil fara fram á þjónustuborði Hagkaups í Skeifunni og hægt er að skila vörum svo lengi sem vörurnar eru heilar og óskemmdar. Skilafrestur er 14 dagar gegn framvísun kvittunar eða reiknings.
Á landsbyggðinni fara vöruskil í gegnum skilaferli Dropp. Viðskiptavinir þurfa að fylla út formið í skilaferli Dropp og skila vörum á næsta afhendingarstað Dropp sem tekur við vörunum og kemur þeim áleiðis til Veiga. Þegar starfsfólk Veiga hefur gengið úr skugga um að vörur séu heilar og óskemmdar eru vörurnar endurgreiddar.
Ekki er hægt að skila:
Ekki er hægt að skila vörum sem búið er að opna eða eru skemmdar. Kvittun er skilyrði fyrir vöruskilum.
Gallaðar vörur:
Skilafrestur á gölluðum vörum er eitt ár frá kaupum. Hægt er að skila vöru sé um vörugalla að ræða. Kvittun er skilyrði fyrir vöruskilum.
Sjá nánar um skilafrest í viðskiptaskilmálum vefverslunarinnar.